Joyeux Noël!

Jæja ég held að titillinn segi allt sem segja þarf ;), Gleðileg Jól og hafiði það sem allra best yfir hátíðarnar!

              -Pezkall-
 

  


La Vie en Rose

Já sæl verið þið öll með tölu, ég held að það sé orðið löngu tímabært ð virkja þessa síðu og ætli ég sé ekki einn af þeim síðustu til að pæla í því, hef ekki tölu á því hvað margir hafa sagt við mig að ég þurfi að fara að blogga (en þau eru alla vega 3) og þá kannski ekki vitlaust að gera það síðasta skóladaginn. Hins vegar gæti það verið vitlaust því að nú eru 40 mínútur þar til ég þarf að mæta í tíma og ég er jafnan lengi að skrifa.

En þá er eins og ég segi komið að þvi, 5. önninni að ljúka (séu prófin aðskilin frá pælingunni um annarlok. Skondið að vera að ljúka þeim áfanga því ég man eftir að á busaönninni minni hugsaði ég gjarnan að ég myndi aldrei komast í 500 áfangana hvað þá ljúka þeim. Þessi önn er síðan búin að einkennast af 2 500 áföngum og ég er ekki látinn enn (meira að segja 3 ef við teljum jóga með... sem við auðvitað gerum ekki). Einmitt dáldið skemmtilegt að á þessari 5 önn tókst mér að vera í áföngum með öllum venjulegu tölunum (frá 100-500) sem segir kannski dáldið um að þó maður sé kominn langt þá á maður nóg eftir. Þó ekki nema eitt ár, sem svosem er kannski fyrir bestu. Það er fyndið þegar maður lítur til baka, hvað mun ég mun frá þessari önn þegar fram líða stundir. Kannski ekkert. Kannski einhverjar nokkrar staðreyndir úr sögu (sem ég gæti þó hafa vitað), merkinguna á orðinu zeitgeisty, þó ég verði að viðurkenna að sú þýðing standi í mér að svo stöddu, eða kannski útskýringar á rómantískum einkennum í ljóðinu Eikarlundurinn. En einhvern vegin þyki mér líklegt að sú vitneskja mun fyrr eða síðar víkja fyrir annarri vitneskju, og ég get svosem ekki sagt að ég sjái mikið eftir henni þó hún sé örugglega mjög nýtileg einhvern vegin. Ekki síst ef mér verður einhvern tíman ógnað af óprúttnum ræningja og beðinn um a) peningana eða b) lífið nú þá eða c) útskýrðu Schlieffen-áætlunina. Þá verð ég aldeilis á flæðiskeri staddur ef ég verð hvorki með peninga né neina vitneskju um Schlieffen-áætlunina eftir. Woe is me! Hvað svosem verður þá á ég alveg pottþétt eftir að muna eftir þessari önn sem önnina sem ég fór til Parísar með frábæru fólki, önnina sem ég skáldaði upp sápuóperu um fatahreinsun í bedúínaþorpi í eyðimörkinni í Egyptalandi fyrir spænsku eða önnina sem ég bjó til myndasögu um David Attenborough og stéttskiptingakerfið í Indlandi. Eða það vona ég að minnsta kosti.

Sko núna eru einungis 12 mínútur í tíma og ég er enn að þvaðra um ágæti MH og minninganna þaðan.  Og vá hvað þetta er ansi lítill texti miðað við að ég er búinn að vera að skrifa í næstum 20 mínútur. Síðan finnst mér eins og ég hafi ekkert meira að segja, en það hlýtur að vera vitleysa því þetta blogg mælist enn einungis í sentímetrum að lengd, ekki metrum. 

Eitt sem ég vil gagnrýna (og það gæti vel verið að fólk álíti mig argasta hræsnara fyrir að skrifa það sem ég er að fara að skrifa) en það eru hjálparstörfin sem senda núna hina og þessa gíróseðla um hvippinn og hvappinn. Nú er ég ekki að gagnrýna félögin sem slík heldur frekar það að þau senda öll þessa gíróseðla sína rétt fyrir jólin, einmitt þegar fólk heldur hvað mest í hvern eyri til að eiga fyrir almennilegu jólahaldi. Nú er ég ekki að segja að Íslendingar séu nískir (þó mér finnist það ekki ólíklegt) en mér finnst að félögin myndu nýta sér gjafmildi Íslendinga betur með því að senda ekki  öll gíróseðla á sama tíma. Þeir eru vafalaust fáir sem tíma að borga þetta allt á sama tíma og því þætti mér persónulega gáfulegra að félögin fengju hvert og eitt sér mánuð, kannski eitt í mars, annað í júní og loks eitt í október (ég tel bara upp þrjú því við fengum 3 gíróseðla á innan við tveimur vikum) og þá fengju þau örugglega eitthvað meira skotsilfur. En svo getur vel verið að þetta sé sálrænt og gjafmildin sé að fara að kveikja á sér á þessum tíma hjá fólki og því ekki úr vegi að kreista það eins og hægt er. Örugglega einhver ástæða fyrir þessu, en þetta er einungis örlítil pæling í kollinum á moi. 

Nú þarf ég að fara að leggja af stað í tíma en ég ætla að halda áfram með þetta á eftir (eða vonandi, einu sinni ætlaði ég að gera það en endaði á því að eyða þeirri færslu þegar það var liðin vika frá því ég byrjaði að skrifa hana. Kem aftur eftir svona 2 klst. eða svo þó að þið í bloggheimi munið ekki taka eftir neinum mun og lesa þetta gáttuð.... eða það vona ég.

Jámm og jæja þá er ég kominn aftur að ég held 2 og hálfum tíma síðar til að klára þessa líka ágætu bloggfærslu.

Veit samt ekki hvort ég hef mikið annað að segja. Eitt veit ég þó að ég er farinn að lengja eftir snjónum. Endalaus vindur alltaf hreint. Í rauninni  ætti fyrirsögnin frekar að vísa í það, en hún gerir það ekki. En alla veganna ég vil hvít jól og helst án alls vind, það er eitthvað svo lítil kyrrð yfir þessu því miður. Á morgun byrjar svo desember mánuður og svo daginn eftir er 1. í aðventu, allt jólastússið að fara á fullt og maður getur farið að hlakka til jólagjafakaupa, smákökubaksturs, góðs matar, skreytinga, konfekts og svo auðvitað fyrstu freistingarinnar sem má byrja að gangast við á morgun en það eru einmitt jólalögin. Að því sögðu þá rifjast upp fyrir mér að ég ætlaði einmitt a gagnrýna lítinn part af Sirkus grein sem birtist í dag. Hún er í fimm liðum og ég ætla að taka fyrir hvern lið fyrir sig. Þetta eru að sjálfsögðu bara mínar skoðanir á móti skoðunum greinarhöfundar. Þið þurfið ekkert að vera sammála.

5 leiðir... til að sleppa við jólastress 

1)  Slökktu á útvarpinu. Þá sleppurðu við jólalögin. Hlustaðu frekar á uppáhaldslögin þín. Það sem mér finnst helst athugavert við þetta er að maður hlustar á uppáhaldslögin sín allan ársins hring og þetta er nú bara mánuður af lögum. ÉG veit að það verður pirrandi til lengdar, en þá ætti maður alla veganna að hlusta á jólalögin. (ÉG er kannski bara svona allt of mikið jólabarn í mér)

2) Haltu partí. Það er víst fátt meira stressandi en það. Þar er ég líka vel ósammála þó ég hafi aldrei fengið þennan heiður. Er ekki einmitt minna stressandi að fara út á lífið eða í partý hjá öðrum? Verður maður ekki alveg smá stressaður þegar maður heldur partý að eitthvað brotni, eða allt fari í upplausn. Svo er líka allur undirbúningurinn fyrir það sem bætist ofaná hinn undirbúninginn, hljómar alla veganna ekki eins og minna stress.

3) Slökktu á tækjum og lestu bók. Ekkert út á þetta að setja sem slíkt, gott að fá sér smá næði og lesa bók, en það er jafnvel enn skemmtilegra eftir jól.

4) Ekki færa fólki jólagjafir. Færðu þeim umslag með peningum. Hefur einhver gaman af því að fa´peninga í jólagjöf? Í staðin fyrir að vera með litríka pakka undir tré með einhverju forvitnilegu og óvæntu í þá er bara hrúga af umslögum og mesta spennan er "Hvor ætli gefi meira Gurrý frænka eða Jónsi frændi?". Og þetta eiga líka að vera þægindi fyrir hina manneskjuna því hún þarf þá ekki að bíða í röð til að skipta. Af hverju er það svona mikið mál? Spyrja bara viðkomandi hvaða hann langar í, helst nokkrar hugmyndir, og kaupa síðan eitthvað af því. Fæstar gjafir eru misheppnaðar gjafir og það er hugurinn sem skiptir máli. En það er greinilegt að þetta er alveg rosalegt stress. Sjálfum finnst mér gaman að versla jólagjafir, en ég er svosem bara smá stráktittur.

5) Farðu í fótabað segir þar. Ég er alveg samm´la því, jafnvel að fara í bað líka og svo kannski nudd . Smá dekur fyrir jólin skaða engan.

Jæja ég held að mitt sé komið á framfæri með þennan blessaða lista og ég veit að margir eiga eftir að vera ósammála mér en það verður þá bara að hafa það.

En já þangað til næst lifið heil og hlustið nú á jólalög um helgina og hafið gaman. Ekki stressa ykkur, stress er bara hugarástand ef maður lítur rétt á hlutina. 

             -Pezkall-


Coccinelle

Ótrúlegt hvernig maður getur setið við tölvuna og ýtt á shuffle takkann á Windows Media Player óteljandi sinnum án þess að finna neitt sem manni hugnast þá og þegar, svo kannski finnur maður eitthvað eitt lag og næstu 5 lög verða góð en næstu lög síðan bara drasl, en kannski er ég bara svona rosalega smámunasamur þegar kemur að tónlist og engin sem þetta les kannist við þetta heilkenni. Þá getur maður heldur ekki verið að velja tónlist því jú maður er nú að reyna að halda huganum við bloggið, sem er alveg nógu erfitt fyrir, en nóg um það.

Vikurnar eru hættulegar fljótar að líða, og ef vikurnar eru hættulega fljótar að líða þá eru mánuðirnir temmilega fljótir að líða, og ef mánuðirnir eru temmilega fljótir þá er árið að líða og áður en maður veit af þá er einhver að skrifa minningargrein um mann, en það er þó ekki fyrr en komandi ár eru gengin til dagar (jafn furðulega orðað sem það er) og þó þetta sé allt svona fljótt að líða þá gerir margt smátt nánast endurtekningarlaust eitt stórt. En þetta er semsagt mín svo að segja afsökun fyrir að blogga ekki fyrr en fyrst núna, komin nánast vika, vantar einhverja nokkrar klst uppá og ég sem ætlaði að vera svo "dulllegur" og blogga a.m.k. annan hvern dag og vera hnyttinn og skemmtilegur. En svona er þetta, maður er ekki alltaf í Eden.

Guð hvað ég held annars að sé gaman að lesa þetta, þér vammlausu lesendur sem pínið ykkur áfram af skyldurækni og von um eitthvað gómsætt í pylsuendanum (þó ekki rúsínu, því ég veit ekki hvað hún ætti að vera gera þar). Ætli ég geti ekki svosem gert athugasemd við þessa líka all ítarlegu lögregluaðgerð við að gera upptækt hið gífurlega magn (50-100 kg) af fíkniefnum sem fundust í skútunni við Fáskrúðsfjörð. ÉG vil taka fram að ég styð ekki notkun fíkniefna né smygl á þeim, ég er bara að gera athugasemd við framkvæmdina, ég vil því lýta á nokkrar tölur sem birtust á forsíðu Blaðsins núna föstudaginn 21.:

Fíkniefnadeild lögreglunnar: 20 menn
Sérsveitin: 22-25 menn
Tæknideild: 2 menn
Áhöfn Ægis (varðskips): 18 menn
Lögreglan á Eskifirði: 3 menn og 1 hundur

við þetta bætist síðan 8-10 ómerktir bílar (ég skil ekki alveg hvernig þeim ljáðist að vera með tölu á bílunum sínum), þyrla landhelgisgæslunnar, varðskip og gúmmíbátur. Nú mergurinn málsins er sá að þessi ofgnótt löggæslumanna (ég taldi upp 68) var notuð til að hafa hendur í hárinu á 3 mönnum samkvæmt því sem mér skilst. Nú ég er hvorki eldflaugasérfræðingur né dýralæknir hvað þá að ég sé vel að mér í hvernig lögregluaðgerð fer fram en ég hefði haldið að 13 faldur fjöldi mannanna sem átti að góma sé kannski aðeins of mikið af því góða og þó 100 kíló séu miiikið af fíkniefnum þá tel ég ekki að það þurfi svona mikið af mönnum til að bera það, sérstaklega ekki þar sem þeir voru með 8-10 bíla. Ég hefði haldið að það mætti nýta þessa lögreglumenn í eitthvað dálítið viturlegra, er ekki nóg af fíkniefnamálum hérna í höfuðborginni án þess að við þurfum að senda 20 menn austur, hefði haldið að helmingurinn hefði dugað, sérstaklega þegar það næsta sem við höfum við her, víkingasveitin, er á staðnum með hálfan fimmtung af mönnum. En eins og ég segi þá veit ég ekkert hvernig þetta gengur fyrir sig, kannski eru þetta bara formsatriði, eða kannski vildi Stefán kallinn bara halda mönnunum gangandi. Ekki ætla ég að vera með sleggjudóma.

Nú annað sem ég ætla að býsnast yfir sem er kannski ekki nándar nærri jafn mikilvægt og hitt málið en það er nemendafélagssíða  Menntaskólans við Hamrahlíð sem hin nýendurnefnda vefnefnd heldur úti. Hérna er ég aftur að hætta mér inn á svið sem ég veit ekki baun í bala um en það hlýtur að vera eitthvað alvarlega að fyrst að hún er ekki enn komin upp þó því hafi verið lofað 1. september. Af hverju ekki bara að skipta um vefþjón eða halda úti bloggsíðu í millitíðinni fyrir nefndirnar því það er bara eitthvað sem vantar á meðan síðan liggur niðri, kannski hefði nefndin frekar átt að einbeita sér að því að laga síðuna heldur en að finna nýtt og frumlegra nafn heldur en vefráð. Hins vegar kann ég því illa að tala svona niðrandi til þeirra þannig ég ætla að svo stöddu að kenna giraffi.net um þetta allt saman.

Svo svona lokum ætla ég að velta mér upp úr einni fréttinni á mbl.is í augnablikinu þar sem talað er um að Zara hafi neyðst til innkalla töskur af því að litlir hakakrossar hafi verið á töskunum, þetta hefur nú verið fordæmt töluvert. Í fréttinni stendur síðan að þetta sé hefðbundið indverskt tákn eins og töskurnar áttu að prýða og að þetta hafi ekki verið á upprunalegu eintökunum. Mín hugsun er sú hversu viðkvæmir eru hakakrossar í nútímaþjóðfélagi, og ef þetta er svona hefðbundið tákn á Indlandi og vér Vesturlandafitubolluhræsnarar viljum endilega panta töskur frá Indlandi (sem ég ætla ekki að setja út á, þvert á móti) af hverju getum við þá ekki bara móttekið þeirra siði, merki og hefðir. Á Indlandi merkir hakakross (eða swastika) velferð og þ.a.l. ætti ekki neitt að vera neikvætt við þetta merki þó að viss þjóðfélagshópur hafi notað þetta sem merki sitt er þeir frömdu slæma mannúðarglæpi. Þó þeir hafi gert það þá er slæmt að aldagamalt tákn sé lagt í skuggann bara út af Nazistum, það er ekki eins og krossarnir hafi verið svarir á hvítum grunni, mér skilst þeir hafi verið grænir og þá vafalaust ekki skáliggjandi eins og venjan er með hakakrossa Nazismans.

En nú segi ég þetta gott, vonandi nutuð þið vel. 

 


Human after all

Blogg: no. Færsla skrifuð á þar til gerða síðu til að tjá skoðanir, löngun, hugmyndir, líðan, tilfinningar, umfjallanir og annað álíka sér og öðrum til yndisauka.

Blogga: so. Framkvæmdin að rita blogg á þar til gerða síðu.

Bloggari: no. Sá/sú sem ritar bloggfærslur á þar til gerða síðu.

Bloggið er í dag útbreiddasta tjáningarform umheimsins á útbreiddasta fjölmiðli heims, veraldarvefnum. Þó að vissulega hafi einstök blogg ekki jafn mikinn lesendahóp og til að mynda eintak af The New York Times þá breytir það því ekki að allir geta léttilega sett skoðanir sínar í prent og hver getur stöðvað það eða ritskoðað? Jah, fyrir utan "admin" þá er það einungis sá sem það ritar. Að vísu einkennast blogg ósjaldan af kjánalegum framsetningum, lélegri stafsetningu, vafasamri íslensku (eða vafasömu tungumáli þess lands sem við á), tilgangslausum upplýsingum og leiðinlegum brosköllum. Það virðist samt ekki breyta þeirri staðreynd að fólk skemmtir sér við að lesa þetta, þó reyndar séu að sjálfsögðu ekki allir jafnir fyrir alþjóð og því fá sumir 1000 heimsóknir á dag en aðrir kannski 6 (með hjálp frá Soffíu frænku).  Þetta er í 3. skiptið sem ég kem að einhverri bloggsíðu og er það ekki gert vegna þess að ég trúi á hið fornkveðna "Allt er þegar þrennt er og aldrei geyma peningana þína í sömu buddu" heldur vegna þess að ég var í sturtu og langaði allt í einu að stofna mér moggablogg án þess að hafa hugmynd um hvað þar ætti að standa (sem kannski sést í þeirri staðreynd að ég er að blogga um blogg). Bloggin mín hafa aldrei sett nein met í heimsóknafjöld eða sætt sérstakri athygli en það má líka allt fara fjandans til því þetta er skrifað á mínum forsendum. Ég fyrra mig allri ábyrgð af blygðunarkenndum lýðsins og ritskoðunarkennd ríkisins. 

Já og nú þegar það er komið á hreint þá held ég að sé ráð að slá botninn í þetta hugsunarstreymi því ég þarf að skella mér í afmæli og á eftir að kaupa gjöf, þannig að þar til næst ekki láta hugarflugið hlaupa með ykkur í gönur.

        -Pezkall- 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband